Jól og aftur jól

Vid´áttum notaleg jól hér í Frederikssund. Thad er vorvedur og hlýja, en hangikjøt í matinn og fallegt lífrænt ræktad jólatré í stofunni, sem vid keyptum á bóndabæ hérna rétt hjá. Freyja elskar hangikjøt (og hardfisk, (og ólífur og fetaost), og íslenskt hraun og ædi, og fisk.) Á margan hátt er hún sannur íslendingur. Henni finnst líka gaman ad sjá brúdubílinn, søngvaborg og stundina okkar søngvavídeo. Hún syngur med " ég er furduverk" og "thetta fullordna fólk er svo skrýtid" med dønskum hreim, en samt allskýrt. Isabella bragdadi ekki á hangikjøtinu, rétt snerti á jafningnum (hvítkálsjafningur) og bordadi mest af brúnudum kartøflum og risalamand i desert.  Malthe er alltaf jafn kurteis, honum finnst lærisneidar miklu miklu betri. Thau eru ad læra ad thakka fyrir sig, en thad er ekki beinlýnis búid ad ala í theim kurteisina. Ég fékk ótrúlega flotta gjøf frá Malthe, hann hafdi saumad ledurbolta handa mér í handavinnu, sem var frábærlega vel gerdur og hann hafdi unnid ad honum í fleiri vikur. Ég táradist næstum thví, vegna thess ad mér fannst ég ekki eiga thad skilid. Isabella hafdi málad mynd handa mér, og hún á eftir ad hanga uppi inni á herbergi. Mér thótti mjøg vænt um thad, en hef líklega verid of upptekin af gjøfinni frá Malthe, til ad thakka almennilega fyrir mig. ókurteisin. Freyja hafdi sjálf pakkad gjøf inn fyrir mig. Lítid "nissebarn" sem ég gaf henni sídustu eda tharsídustu jól í adventugjøf. Hún hafdi sjálf skrifad á kortid og pakkad inn, óg ekki sagt ord um thad vid neinn. Mér thótti afskaplega vænt um thad.

Freyja, Malthe og Isabella fengu margar fínar gjafir og voru vodalega ánægd. Thau fengu ótrúlega fínar gjafir frá sigrúnu systur, sem thau aldrei hafa hitt. Malthe er ekki búinn ad leika med annad en lego-id sem lýsir flottu raudu ljósi, og´Ìsabella var mjøg ánægd med ilmvatnid. Hún er ordin vodalega mikil skvísa. Freyja og Malthe fengu flotta sloppa, í bleiku og bláu.  Og margt margt fleira.

Í dag bøkudum vid loksins. Freyja bakadi bollur, Isabella gerdi konfekt, og Malthe piparkøkur. Thad var mjøg "hyggeligt".  Freyja fékk heimsókn frá nágrønnunum í dag, thar eru 2 litlar stelpur, 3 og 6 ára.  Thad er gott ad hún fari ad eignast vini hérna.

Thannig ad vid høfum thad gott, vel gefin og støndum á blýstri. Bestu jólakvedjur hédan.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband